Fara í aðalinnihald

Færslur

Uppbygging Æfinga

Við þjálfun ungra leikmanna skiptir uppbygging æfinga gríðarlega miklu máli. Skoðanir eru sjálfsagt misjafnar á því eins og gengur. Mín skoðun er sú að hefðbundin fótboltaæfing eigi að innihalda eina megin stefnu eða þema. Allt frá upphitun þarf æfingin að vera uppbyggð með endirinn í huga og þannig þróast áfram þar til ákveðnu hámarki er náð. Í framhaldi af því á að enda æfingar með frjálsu spili hvar leikmenn eru kvattir til að hugsa um og framkvæma þá hluti sem þeir voru að æfa. Með vel skipulögðum æfingum hvar erfiðleikastigið eykst smám saman náum við að koma þeim þáttum sem við erum að kenna/þjálfa smám saman inn í leik leikmanna/iðkenda. Þannig hefur allt sem kennt er og þjálfað á æfingum svokallað ,,leikrænt gildi” og tilgangurinn því að leikmenn geti notað og framkvæmt færnina í leik. Hér að neðan kemur dæmi um uppbyggingu á æ...

Vitsmunaleg Færni í Knattspyrnu

Stundum er sagt að knattspyrnuþjálfun fari í hringi.   Er þá átt við að þessa stundina leggi allir áherslu á einhvern ákveðinn þátt frekar en einhvern annan. Þetta fer oftast eftir því hverjir skara fram úr á hverjum tíma. Ef við horfum aftur í tímann þá kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Á níunda áratug síðustu aldar voru menn t.d. mjög uppteknir af líkamlegu formi leikmanna. Var mikið unnið með hlaup og fleira án bolta, og í raun æfingar sem í dag myndu teljast ekki tengjast fótboltanum mikið.  Ástæðan var þýska landsliðið.  Oft nefnt þýska stálið!  Þeir unnu flesta fótboltaleiki á þessum tíma(og gera reyndar enn) og voru mjög líkamlega sterkir og höfðu mikið og gott úthald. Miklir íþróttamenn. Á árunum 1980-1990 varð þýska karlalandsliðið í fóbolta bæði Heims og Evrópu meistari. Fór auk þess tvisvar í úrslitaleik HM(vann s.s. einu sinni og var tvisvar í öðru sæti), og einu sinni að auki í undanúrslit EM. Þeir voru í raun fyrirmynd þessara ár...

Gildi þess að sjá bolta og umhverfi

Á æfingum mínum í Coerver Coaching legg ég mikla áherslu á að kenna og þjálfa upp leikskilning strax frá unga aldri.   Í   gamla daga var sagt að ekki væri hægt að kenna leikskilning.   Það væri eitthvað sem kæmi með reynslunni og á því að spila leikinn.   Að sjálfsögðu geta menn þjálfað upp slíkt á löngum tíma en ég er algjörlega ósammála því að ekki sé hægt að kenna leikskilning strax frá unga aldri.   Eins er ég ósammála þeirri gömlu fullyrðingu að ekki sé hægt að kenna og þjálfa tækni.   Talið var að sumir væru með tæknina og aðrir bara ekki!   Og sem betur fer, held ég að flestir séu ekki þeirrar skoðunar lengur.   Hinsvegar hef ég heyrt utan að mér suma þjálfara velta fyrir sér? , , Af hverju er verið að kenna gabbhreyfingar?  Það er ekki eins og menn séu að nota þær í leiknum!  Menn þurfa að geta tekið á móti bolta og sent!  That´s it!!! “ Slíkar fullyrðingar lýsa að mínu mati algjörri vanþekkingu á hæfileikamótun ungra leik...

Nýtum Tímann

Í þjálfun barna og unglinga í knattspyrnu er mikilvægt að allur æfingatími sé eins vel nýttur og mögulegt er. Aldurinn 8-14 ára er oft kallaður hinn gullni aldur í hæfileikamótun ungra knattspyrnumanna þ.e. á þessum aldri eru leikmenn móttækilegastir og lífræðilega best til þess fallnir að þjálfa upp góða tækni(þó allir geta á öllum tíma og aldurskeiðum bætt sig)  Lykilatriðið er samt grunnfærnin sem allir aðrir þættir leiksins eru svo byggðir ofan á. Grunnfærni einstaklingsins eru að mínu mati eftirfarandi atriði.   Fyrsta snerting á bolta Hlaupa með bolta 1v1 hreyfingar Skjóta á mark Grunnurinn að þessu öllu er svo knattstjórnun eða “ball mastery”. Á þessum tiltekna aldri er gríðarlega mikilvægt að ofangreindir þættir séu útgangspunktar í allri þjálfun og sá grunnur sem aðrir þættir þjálfunar eru svo byggðir ofan á. Fyrir okkur í Coerver Coaching er algjört lykilatriði að boltinn sé miðpunktur alls í þjálfun barna og unglinga.  Allt f...

Leikstíll & Hæfileikamótun Ungra Leikmanna

Knattspyrna er liðsíþrótt hvar keppt er til sigurs. Sigur er alltaf markmið keppnisíþrótta.  Við þjálfun barna og unglinga er hinsvegar mikilvægt að sigur sé ekki á kostnað hæfileikamótunar. Því ef svo er þá verða ungir leikmenn af mikilvægum þáttum í sínu þróunarferli sem minnka möguleika þeirra á að ná sínum markmiðum í framtíðinni.  Ósigrar eru hluti af leiknum. Alveg eins og mistök eru hluti af velgengni. Nelson Mandela sagðist eitt sinn aldrei hafa upplifað ósigra. Heldur eingöngu sigra og lærða reynslu.  Mig langar að velta upp tveimur spurningum hér.   1. Hvaða leið og leikstíl er best að nota til að sigra í knattspyrnuleikjum? 2. Hvaða leið og leikstíl er best að nota í hæfileikamótun ungra leikmanna?  Ég svara fyrri spurningunni fyrst. Til þess ætla ég að nota sem dæmi tvo sigursæla þjálfara úr nútímanum. Þá Pep Guardiola(Manchester City) og Diego Simone(Atletico Madrid).  Leiðir þeirra eru trauðla ólíkar að sama markmiðinu þ.e. að sig...