Fara í aðalinnihald

Þrjú Stig!


 Í æfinga og kennsluáætlun Coerver Coaching viðhöfum við einstaklingsmiðaðar æfingar og leikæfingar í smáum hópum. 

Æfingar eru leikgrænar með auknu erfiðleikastigi og hjálpa þannig leikmanninum að þjálfa með sér leikskilning og getu til ákvarðanna við síbreytilegu ástandi leiksins. 

Grunnurinn að þessu er grunnfærni einstaklingsins. 

Fyrir okkur í Coerver Coaching er grunnfærni einstaklingsins eftirfarandi: 

Fyrsta snerting, móttaka og sending, hlaupa með bolta, 1v1 hreyfngar og klára marktækifæri. 

Grunnfærnin er undirstaða þess að hægt sé að þjálfa aðra þætti leiksins. Þannig að í grunninn skiptir algjöru lykilatriði að okkar mati að æfingar séu uppbyggðar þannig að þær séu leikgrænar(game related) með auknu erfiðleikastigi og leikmaðurinn læri að bregðast við og hafi færni til að nýta sér síbreytilegar aðstæður leiksins. Við viljum skipta æfingavegferð leikmanna 16 ára og yngri í ÞRJÚ STIG. 

Vegferðin á að vera eftirfarandi að okkar mati: 

Fyrsta stig: 4-6 ára: Þróa með sér fyrstu ,,færni stigin“: Læra og æfa í gegnum skemmtilega leiki. 

Annað stig: 7-11 ára: Þróa og æfa ,,grunnfærnina“: Æfa og bæta einstaklinginn. 

Þriðja stig: 12-16 ára: Þróa og æfa ,,liðsmanninn“: Þróa og æfa árangursríkan leikmann í liði. 

HÉR ER ÆFINGA OG KENNSLUÁÆTLUN COERVER COACHING: 

KNATTSTJÓRNUN: Grunnurinn. Fyrsta snerting. Hafa stjórn og sjálfstraust með bolta sem hefur áhrif á alla aðra þætti æfinga og kennsluáætlunarinnar. Þjálfar vinnusemi og sjálfstjórn(bera ábyrgð á sjálfum sér). 

MÓTTAKA OG SENDING: Liðsfærnin. Án góðrar færni í móttöku og sendingu eiga leikmenn ekki mikla möguleika. Þjálfar samskipti. 

1v1 HREYFINGAR: Einstaklingsfærni. Til að halda leikstöðu og skapa svæði til að skjóta á mark, senda á félaga eða hlaupa með bolta. Þjálfar upp sjálfstraust og sköpunargleði. 

HRAÐI: Hugrænn og líkamlegur hraði. Með og án bolta. Taka hlaup. Viðbragð. Ákvörðunartaka. Þjálfar keppnisskap.

 KLÁRUN: Færni til að klára marktækifæri. Einbeiting. Tímasetning. Hugrekki. Þjálfar upp ábyrgð. 

SAMSPIL: Allt kemur heim og saman. Varnarleikur í smáum hópum. Hraðar sóknir. Samspil(compantion play). Þjálfar upp liðssamvinnu.


Allar upplýsingar um næstu námskeið eru á heidar.torleifsson@coerver.is

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Knattstjórnun

Knattstjórnunaræfingar eru algjört lykilatriði í hæfileikamótun ungra leikmanna. Xavi Hernandes fyrirliði Barcelona sagði í nýlegu viðtali að knattstjórnunaræfingar væru algjör undirstaða leiksins að hans mati!  Leikmaður með góða knattstjórnun nýtur leiksins miklu betur hvar t.a.m. móttaka á bolta er með allt öðrum hætti en hjá leikmanni sem leggur ekki mikið upp úr slíkum æfingum.  Ef við myndum nota þá samlíkingu að hæfileikamótun leikmanna í fótbolta væri eins og að byggja hús, þá er knattstjórnun grunnurinn sem við byggjum aðra þætti út frá.   Grunnurinn verður að vera traustur og góður þannig að hægt sé að byggja flotta höll   Allt það frábæra sem gerist í leiknum er þegar einhver er með boltann. Þannig að mikilvægi þess að þjálfa upp gott „touch“( eins sagt er á fótboltamáli) sem og samhæfingu, skottækni, færni til að rekja bolta og senda er algjört lykilatriði fyrir hvern og einn leikmann.  Þjálfum upp góðar venjur   Knattstjórnun k...

Leikmenn með fjölbreytta virkni

Að þjálfa unga leikmenn í sérstökum leikstöðum er mikil tímaskekkja að mínu mati og beinlínis röng þjálfun! Það á alls ekki að þjálfa leikmenn í yngri flokkum upp í einhverja eina leikstöðu! Það er rangt! Heldur þurfa leikmenn að vera þjálfaðir þannig að þegar upp í meistaraflokk er komið hafi þeir fjölbreytta „virkni“. Verði hinn fullmótaði leikmaður ef maður getur sagt sem svo þ.e. leikmaður sem getur til jafns bæði varist og sótt og tekist á við síbreytilegar aðstæður leiksins. Til þess þurfa leikmenn að hafa yfir að ráða fjölbreyttri virkni og færni. 1v1 hreyfingar gera gæfumuninn. Þó að lið sé miklu meira með boltann heldur en mótherjinn, þá ef mótherjinn er vel skipulagður og verst vel, getur reynst þrautinni þyngri að brjóta slík lið á bak aftur. Leikmenn sem geta búið til eitthvað úr engu eru sannarlega gulls ígildi fyrir öll lið og hefur það ekkert breyst og mun ekkert breytast. Æfingar í yngri flokkum þurfa því að endurspegla þetta og er grunnfærni einstaklings lykilatriði og...

Einstaklingsmiðuð þjálfun í fótbolta

Mín skoðun er sú að árangur liða er undir gæðum einstaklinganna sem þau skipa kominn. Það er hægt að tala um gildi leikkerfa, leikstíla, leikgreininga.  En þegar allt er á botninn hvolft eru það gæði leikmannanna sjálfra sem skilja á milli. Nálgunin í þjálfuninni þarf því að vera einstaklingsmiðuð að mínu mati! Óháð leikkerfum og leikstílum þá eru það ætíð leikmennirnir sem geta búið til eitthvað úr engu sem vinna leikina.  Í yngri flokkum má aldrei liðið vera í forgangi heldur einstaklingarnir.  Leikæfingar eiga að vera í smáum hópum með auknu erfiðleikastigi. Æfingarnar leikgrænar og aðlaðandi. Heimaæfingar eru gríðarlega mikilvægur þáttur og er gaman að sjá menn nú á þessum erfiðleikatímum duglega að hvetja til þeirra á meðal ungra iðkenda. Í meistaraflokki, sérstaklega í efstu deildunum hvort heldur er hér heima eða erlendis þá eru nánast allar upplýsingar uppi á borðinu og aðgengið að öllu í því sambandi alltaf að v...